Akureyri öll lífsins gæði.

26.03.2008 17:18:01 / akur-eyri

Akureyri

Sælt verið fólkið,

Jæja við hef ákveðið að byrja aftur með flottustu síðu Akureyrar.

Takk fyrir og það mun koma bráðum flott blogg.

Kveðja
Akureyrarskvízurnar
Erna og Hugrún:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 19:34:21 / akur-eyri

Skólabærinn akureyri

Fyrirgefið þið lesendur og Erna Gull að ég hef ekki nennt að skrifs blogg fyrr en nú. Núna ætla ég að skrifa um skólana á Akureyri. Sjálf var ég í leikskólanum Iðavöllum þegar ég var lítil og grunnskólanum Brekkuskóla sem er jafnframt stærsti grunnskóli akureyrar

 

Akueyri er oft kallaður Skólabær enda er það ekki Skrítið Einn Háskóli, 2 frammhaldskólar,

þeir heita 

Háskólinn á akureyri

Verkmenntskóli akureyrar VMA

Menntaskólinn á Akureyri MA

Grunnskólarnir :

Brekkuskóli

Síðuskóli

Giljaskóli

Eyrarskóli

Lundaskóli

 

Svo helling af leikskólum

 

Í MA eru margar brautir

svo sem

Félagsfræðibraut

Almennbraut

Málabraut

og einhverjar fleiri

En í Vma eru aðalega verklegt svo sem rafvirkjun eða rafeina kokkinn, saumar ,fatasaumar, og svo líka svona brautir eins og eru í MA.

 

Menntaskólinn á Akureyri

 

 

 

gamli Brekkuskóli

 

husvma650_640E

En tölvan mín er eitthvað biluð og því ætla ég að hætta að skrifa en

Njótið vel

Kveðja Hugrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 14:59:05 / akur-eyri

Jóna Berta Jónsdóttir er Norðlendingur ársins 2007

Norðlendingur ársins árið 2007, að mati hlustenda Útvarps Norðurlands, er Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar í Eyjafirði. Kjörið fór fram 27. og 28. desember.

Jóna Berta hefur starfað hjá Mæðrastyrkstnefnd í hartnær 20 ár og Útvarp Norðurlands telur hana sannarlega vel að titlinum komin. Fjölmargir voru tilnefndir í kosningunni og greinilegt að margir Norðlendingar hafa látið að sér kveða á nýliðnu ári.

Jóna Berta Jónsdóttir, verður gestur í útsendingu Útvarps Norðurlands í dag.

 

Ljósmynd: Kristján Kristjánsson / Vikudagur

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 23:42:59 / akur-eyri

Skemmtilegast að keyra þegar Unnur, Bjarki, María og Erna eru í bílnum.!

Sælt verið fólkið,

 

Já mikið rétt. Eg ákvað að blogga því annars bloggar ekki neinn. En við höfum bara verið að njóta jólanna og áramótanna.

 

En ég ætla að blogga um hvað það er yndislegt að keyra til Akureyrar. 

Þegar maður keyrir á bíl. Það er miklu skemmtilegra.  Því þá er hægt að stoppa hvenær sem maður vill og hvílt sig. Eða skoða hvað Ísland er flott land. Síðan er hægt að keyra og hlusta á yndislega tónlist. Kannski bara uppáhaldshljómsveitina þína. Hver veit? En það er mjög gaman að hafa samt farþega í bílnum. Það er miklu skemmtilegra. Þá getur farþeginn veit þér félagsskap á meðan því ekki er gaman að vera einn að keyra þó það sé alveg hægt. Ef þú vilt keyra einn. En það er samt skemmtilegra ef það er fólk í bílnum. Sérstaklega þegar Unnur, María og Bjarki eru í bílnum. Þá er alltaf fjör. Því hún María er alltaf svo hress og líka Unnur. Síðan er mjög gott að hafa farþega sem velur góða tónlist á meðan ökumaðurinn keyrir. En munið eitt aldrei trufla ökumann! En skemmtilegustu ferðafélagarnir sem skella sér bráðum til Akureyrar  eru auðvitað María, Bjarki og Unnur. Ég er svo heppin að ég er búin vinna fyrir Akureyrarferðinni. Þannig hún verður yndislega ferð. En besti ökumaðurinn í heimi er auðvitað Bjarki. En þó að Jón sé líka mjög góður ökumaður. En samt bregst Bjarki aldrei. Skemmtilegust í ferðinni verður auðvitað hún Unnur. Því hún er sko að fara hitta sætasta mann í heimi. Hann Hinrik en mér finst samt annar aðili miklu sætari. En það er bara hennar skoðun. :). Það vita það allir sem þekkja mig hver það er :).

 

Auðvitað verða myndir af besta fólki veraldar. Sem leggja af stað bráðum til Akureyrar og hitta allt skemmtilega fólkið á Akureyri. En Karl Ásgeir þú veist að ég mun alltaf elska þig <3

 

Myndir

 

 

 

 

 

 

En takk fyrir mig og vonandi höfðuð þið góð jól og hlakka til að sjá ykkur. Skemmtilegasta fólk í heimi :)

 

Erna Hólm Kveður í sínu hæðsta valdi. Með því að við María, Unnur, Bjarki fari til akureyrar. Og Erna Gull splæsir á alla. Hótel Kea og allt. :) og ég verð mjög róleg því ég er alltaf svo róleg :)

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 00:03:05 / akur-eyri

Jólablogg

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hafið það sem allra best um jólin.

 

 

Jóla Kveðja

Erna Gull og Hugrún ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 12:41:36 / akur-eyri

Akureyri

Sælt verið fólkið á þessum yndislega laugardegi. Nei, nei þar fóru engir fuglar á Akureyri í bað. Ég kíkti í vefmyndavélina á akureyrarsíðunni og ég sá bara enga fallega fugla í baði. Mjög skrítið. :).

 

En þeir sem  vita ekki af þessu. Þá er vefmyndavel á ég www.akureyri.is. Þá sjáið þið hvort það  sé sól, snjór, rigning. Frændi minn var svo mikill snillingur að finna upp á þessu. Og líka þegar við gengum fram hjá götuni þar sem myndavélin var þá brostum við alltaf og gengum um einsog almennilega hresst fólk. Yndislega gaman. Eins og maður sé bara frægur.  En ég kíki oft í vefmyndavélina en stundum er ekki hægt að sjá gegnum síðuna en stundum. :)

Síðan ég ætla að blogga bara um eithvað núna. Því ég bara  veit ekki hvað ég get skrifað um. Þannig ég ætla bara að blogga um eithvað sem hefur gerst á Akureyri og ég skal lofa ykkur þvín að þetta blogg verði ekki of langt :).

Akureyringar geta verið þreyttir

 

En  það sem gerðist í vikunni á Akureyri það var sko merkilegt skal ég segja ykkur. Það var ungur maður sem á eina konu og tvö börn. Hann var að kaupa miða í Lottói á netinu og fékk að velja tölurnar á miðanum og hann vann hvorki minna en 38 milljónir. Vá hvað þessi maður er eithvað heppinn. En hann var því miður búinn að kaupa allar jólagjafirnar., Svo jólagjafirnar verða ekki dýrar í ár. En þessi maður tók sér frí úr vinnunni og ákvað að hafa góðan dag og hugsa aðeins málið hvað hann getur gert með alla þessa peningaupphæð :). En þessi maður vildi ekki koma fram með nafni svo hann er kallaður  ónefndur aðili. En allavegana  óska ég þessum manni til hamingju :).

 

Þá vitið þið að Akureyringar eru alltaf svo svakaleg heppnir og skemmtilegir. Sætustu strákarnir koma frá Akureyri. Enda herra ísland frá akureyri :).

 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra :)

MYndir

 

Flestir vilja vera ríkir. Kanski verður hann svona :)

 

Aðalstræti á Akureyri

Aðalstræti.

 

 

 

Erna Hólm;)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 17:42:43 / akur-eyri

Akureyrarkirkja

Núna ætla ég að skrifa blogg um Akureyrarkirkju. En í þeirri kirkju var ég bæði skírð og fermd og var líka í æskulýðsfélagi kirkjunnar. En æskulýðsfélag þessarar kirkju er elsta starfandi æskulýðsfélagið á landinu.           Átt að kirkjunni úr miðbænum eru tröppur og þær eru 100   

Akureyrarkirkja2.jpg

Það sem er inní kirkjunni eru gluggar úr einhverskonar mósaík efst í glugganum er merki fyrir eitthvað en svo í miðjunni er eitthvað úr biblíusögunum og svo neðst í gluggunum er eitthvað úr íslenskri ´kristnisögu. En það er mismunandi myndir í hverjum glugga og ég held að gluggarnir séu samtals 16 bæði á hliðum kirkjunnar  og endanum á henni, bakvið altarið

miðju myndin í einum glugganum

neðsta myndin í einum glugganum

Í kirkjunni eru 3 presta Þeir Heita Sr. Svavar Alfreð, Sr. Óskar, Sr. Sólveig Halla. Ég man sjálf eftir 2 af þessum Svavari prestinum sem fermdi mig og Sólveigu úr Æskulýðsfélaginu og var þar með félagið.

Þegar maður kemur inn í kirkjuna þá er helling af rauðum bekkjum orgel á svölum inn í kirkunni. Altari með girðingum um það fjórir gluggar bakvið það svo hengur stór kross rétt hjá altarinu. Svo er nokkur skonar stór  keramik engill sem er notaður fyrir skírnarfont mjög flottur. En þessi kirkja er æðisleg og ekkert um hana samt að segja meir hún er rosa flott og gluggarnir sérlega flottir.

www.akureyrarkirkja.is ef þið viljið vita meira um hana er hér síðan

myndir

 

 

 

KV Hugrún Erla

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 23:29:09 / akur-eyri

tveir brandarar

Brandari :D

 

Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar...

 

Mamma þín er svo feit að þegar hún flýgur til Akureyrar þá þarf flugvélin að millilenda tvisvar.

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 00:10:48 / akur-eyri

Ónefnd færsla

Sælt verið fólkið,

 

Ákvað að skrifa blogg því það er svo gaman.

 

sko ég komst af þeirri niðurstöðu að fólkið á Akureyri er bara stórskemmtilegt. Það er frekar skrautlegt. Með sitt flotta mál sem er því miður að deyja út. En þess vegna er komin tími til að við björgum Akureyringum og byrjum að tala norðlensku á fullu. En reykvíkingar eru svo vitlausir að segja að þetta sé ljótt mál. Þetta er bara príðilegt mál. Ertu ekki sammála mér unnur að norðlenska er flott mál.

En sko málið er nú það að húsin á Akureyri er svo flott að ég ætla að flytja þangað þegar ég er orðin stærri og finna mér norðlending sem er skemmtilegur, góður, sætur og verður að vera fyndinn því annars drepst ég úr leiðindum.

Húsin á Akureyri eru stór, lítil, flott, mergjuð og einstaklega vel hönnuð fyrir að búa í. Enda flottustu hús sem þú getur búið í.

Ég ætla að lýsa einu húsi á Akureyri. Það er alveg flott. Það er gult frekar lítið. gamalt. En ég fór einu sinni í það þegar ég fór í mataarboð. En samt var ég ekki jafn ánægð þegar ég ætlaði að fara á klósettið. Því klósettið var niðrí í einhverjum kjallara og tröppurnar voru svo þröngar að ég varð skíthrædd og sagði við frænda minn. Ég fer sko ekki þarna niður. En frændi minn var svo góður  að sannfæra mig og ég hélt ég myndi detta þarna niður. En sem betur fer þá datt ég ekki þarna. En klósettið var samt alveg príðilegt. Þar var líka þvottahús. Þar var eitt lítið klósett, vaskur og flott baðkar. En svona voru víst gömlu húsin í gamla daga. Klósettið var alltaf niðrí í einhverjum kjallara.

 

En ég var samt svo skotin í einu húsi en það var auðvitað á Eyrinni. En man ekki alveg hvað gatan heitir. En það var blátt  og þakið var svart. Geðveikt hús. Þar gæti ég hugsað mér að búa.

 

En ég og Hugrún vorum búnar að ákveða að flytja undir brúnna hjá Oddeyragötu. Ætluðum að vera millar. Eiga heilt danshús,  heilt tónlistarhús, bar, skemmtistað, hafa fullt af sætum strákum að vinna þar. Síðan ætlaði ég að hafa tónlistarhús þar og syngja þar á kvöldin og æra allt hverfið. Því Akureyringar elska þegar ég syng því ég syng svo undur vel. Allavegana fanst akureyringunum það þegar ég söng niðrí bæ. Ekkert breytir því með henni Rósu. Fullt af útlendingum að mynda okkur. Gaf okkur meira segja númerið sitt. Og sögðu að við þurftum að kíkja á myndirnar á einhverjum módel síðu í Rússlandi. Við nutum þess í botn. Enda elska ég útlendinga. En nóg um það.

Það er ekki mikið af blokkum á Akureyri en þær eru samt þarna. Enda mundi ég persónulega ekki vilja búa í blokk þó ég bý þar. En ein er blá, ein er gul, ein er rauð og einhverjar aðrar.

 

Myndir.

Húsið sem ég var svo ástfangin af.

 

Flott hús.

 

Elsta hús Akureyrar.

 

Síðan er ég ekki sátt með hann Bjarka. Að hafa ekki vilja að keyra okkur Unni til Akureyrar. En hann keyrir okkur í Janúar :D.  Akureyri er svo flottur bær. Við verðum bara að sannfæra hann að Akureyri er besti staðurinn :D. Tala bara endalaust um Akureyri. Þá pottþétt langar honum að fara :D

 

 

En ég myndi segja að þetta væri bara ágætis blogg miðað við að það var erfitt að finna myndir en það reddaðist. En ég ætla samt að setja flottustu myndina mín í heimi.

 

Jæja læt þetta gott í bili. Unnur voandi varstu ánægð :D

 

Im out.

 

Erna Hólm;)

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 11:17:41 / akur-eyri

Sætu strákarnir á Akureyri

Sælt verið fólkið:)

 

Þetta blogg verður eingöngu um sætustu strákanna á Akureyri. Og eru þeir allir rosalega sætir. Loksins fengu þeir tækifæri til að fá að fara í ljós. Því vitið menn það er komin sólbaðsstofa á Akureyri og fara þá margir í ljós þar. Sætu strákarnir eru skemmtilegir, góðir og sumir vondir og leiðinlegir. En það eru bara þrír strákar sem standa upp úr það er auðvitað Hinrik, Benjamín  og Karl Ásgeir. En Karl Ásgeir býr þar nú bara á veturnar á vistinni og Benjamín. En Hinrik býr þar allt árið í kring og er talinn mjög sætur og er það. En hvað er ég að rugla ég hef nú séð nú meiri sæta strákar á Akureyri. Það er hann Gunnar hann er nú algjör foli. En Hinrik er sá alsætasti.

Síðan var herra íslands frá Norðurlandi :)

 

 

 

Svona líta allir sætu strákarnir út á Akureyri.

 

      

 

  

 

 

 

 

 

 

 

Síðan eru alveg heill hellingur að sæstu strákunum á Akureyri og þeir eru sko með hjarta úr gulli.

 

 

Þannig ef þið eruð að leita af sætu strákunum þá farið þið bara til Akureyrar og þá finnið þið þá. En Akureyringar eru líka svo skemmtilegir og fyndnir og eru með flott mál. Segja t.d Coke í bauk, spaghetty í staðinn fyrir spaggetý. Pylsu í staðin fyrir pulsu.

 

En Hinrik er sá sætasti. Hann er fallegastur. Það er ekki hægt að finna sætari strák segir hún Unnur.

 

Vonandi var þetta nú flott blogg og þá vitið þið að sætustu strákarnir koma frá Akureyri eða frá vistinni. Þeir eru sætastir :)

 

Takk fyrir mig

 

Erna Hólm:;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 15:52:34 / akur-eyri

Strætóferðir á Akureyri

 

 

Ef maður á ekki bíl og kemur með flugvél eða kemur gangandi hjólandi eða með rútu eða jafnvvel skríðandi. Ef þig langar að komast um bæinn og skoða hann þá er gott að taka strætó vegna þess að það kostar ekki neitt og líka það er heilsumsamlegt að labba út að næstu stoppustöð. Þá fær maður líka hreyfingu, það verður líka minni umferð og minni mengun ef fleiri myndu taka strætó. Aðalstoppustöðin á Akureyri er nætursalan sem er niðr í miðbæ  hliðinna á Nýja bíói. Ég sjálf sem átti heima á Akureyri tók ekki oft strætó því ég bjó allaf á svo góðum stað í bænum að það var stutt í allt.  

 smá upplýsingar um strætó af www.akureyri.is

  • Opnunartímar: Ekið frá kl. 6.25 til 23.03 alla virka daga og 12:16 til 18:03 helgidaga.
  • Heimilisfang: Rangárvöllum, 600 Akureyri
  • Sími: 462 4929 (skrifstofa)
  • Fax: 462 4930
  • Netfang: vak@akureyri.is">svak@akureyri.is

 

 Kveðja Hugrún Erla

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 22:05:45 / akur-eyri

blogg 2. Akureyri

Gott kvöld,

Það er komin tími til að blogga. Ég held ég bloggi bara um sundlaugina á akureyri.

 

Sundlaugin á Akureyri er mjög góð en hún mætti vera á betri stað. Því fyrir fólk sem býr á eyrinni þurfa þá að ganga upp heillanga brekku. Sem er ekki gott fyrir fólk sem eiga erfitt með að ganga. En hvaða hvaða bara góð hreyfing held ég. Sundlauginn er bæði með Innilaug og útilaug. Þar eru fjórir pottar, tvær sundlaugar og ein laugin er fyrir fólk sem vill synda og líka fyrir sundæfingar. En hin laugin er fyrir krakka sem vilja leika sér.                              En svo finst mér að mínu mati besti potturinn  sem er við hliðina á barnalauginnni. Hann er passlega heitur og góður. Síðan eru tvær rennibrautir. Ein er gul og hin er blá. Í þeirri bláu þá rennur maður ser niður og svo þegar maður er eiginlega að fara út úr rennibrautinni þá kemur myrkur og það er skemmtilegast. Síðan er barnapottur. Þar er líka smábarnarennibraut og svo er hún líka fyrir fólk sem vill vera í sólbaði. Mæli eindregið með því ef þú ert að fara til akureyrar að fara í þessa sundlaug. Hún er nýasta sundlauginn.

 

Myndir

 

 

 

Þarna eru rennibrautirnar.

 

Barnapotturinn

 

Þarna sjáið þið hvað þetta er flott sundlaug. :)

 

Takk fyrir mig.

Erna Hólm.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 21:27:51 / akur-eyri

Akureyri

Sælt verið fólkið,

 

Ég hef elskað landið Akureyri frá því ég var pínu lítil. Vá ég get ekki lifað án þess að fara ekki þangað á hverju sumri. Þetta er yndislegt land og vonandi bý ég þar í framtíðinni. Ég er svo heppin að vera ættuð frá Akureyri og þegar ég var í 1 bekk í framhaldsskóla þá valdi ég að skrifa ritgerð um Akureyri. Og fékk ég auðvitað 9,0 fyrir ritgerðina. Kostur við Akureyri er þessi.

  • Gott veður á sumrin.
  • Sætir strákar.
  • Skemmtilegt fólk
  • Góð sundlaug
  • Besta búð í heimi perfect og fargo.
  • Góður skóli sem er sagður vera til fyrirmyndar.
  • Góð sundlaug.
  • Besti ísinn. Brynjuísinn

 

Akureyrir er fallegasti bær sem til er. Þar er alltaf gaman að koma þó það sé sumar eða vetur. Þar er stutt í allt og þú getur gengið næstum því alltaf. Þegar ég var þar í tvo mánuði gekk ég allt sem ég fór. Ef ég nennti.

 

 

 

:Pv17MbjWtjVKLM:http://visit.is/visit/img/town/akureyri-kirkja-640.jpg" alt="" width="103" height="137" />

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 21:18:08 / akur-eyri

Velkomin/nn á BlogCentral

Þetta er fyrsta færslan þín á BlogCentral. Til að eyða henni eða breyta notar þú umsjónarvefinn sem þú kemst inná með því að smella á "Vefstjórn" hér í valmyndinni vinstra megin.

Inni í vefstjórninni getur þú skrifað nýjar færslur, breytt færslum eða eytt þeim.
Sama gildir um gestabók þar sem þú getur eytt færslum úr henni og haft yfirsýn yfir um leið þá sem skrifa í þína gestabók

Viljir þú hafa tengla á aðrar heimasíður getur þú auðveldlega bætt þeim við undir "Tenglar" í vefstjórninni.

Til að breyta útliti síðunnar og nota þau útlit sem eru í boði smellirðu á "Stillingar á síðu" sem finna má neðarlega í valmyndinni vinstra megin.

Viljir þú bæta við bloggurum á síðuna þína til að geta skráð sig sömuleiðis inná síðuna þína, þá ferðu í "Notendur" neðst í valmyndinni vinstra megin.

Undir aukahlutir getur þú bætt hinum ýmsu hlutum inná síðuna eins og t.d. niðurteljara, leit, dagatal og fleira.
Gangi þér vel að blogga,

Besti kveðjur, BlogCentral

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Skoðannakannanir
Um okkur